12mars

Til hamingju með afmælið..

Elsku fallega Sigrún. Í dag hefðir þú orðið 23 ára. Það er svo skrítið að hafa þig ekki, að geta ekki hringt í þig & óskað þér til hamingju með daginn.
Ég trúi því ekki enn þá að þú sért farin..það eru að verða 3 ár síðan & enn þá finnst mér bara eins & þú sért í ferðalagi. Ég allavega hugsa það bara þannig. Ég sakna þín óskaplega mikið & vona að þú hafir það gott, hvar sem þú ert, elsku engill.
12. mars 2009 klukkan 09:44
Eva Hildur Snjóudóttir
Engin athugasemd
12mars

Til hamingju með afmælið elsku fallegi engill.

Elsku fallega Sigrún. Til hamingju með 22 ára afmælið þitt.
Finnst svo skrítið að það séu að verða 2 ár síðan þú yfirgafst þennan heim. Ég man allt við þig, svo sterklega. Það er ekkert í móðu. Ég man enn þá hláturinn þinn, brosið þitt, röddina þína, hvernig þú söngst..allt. Minning þín mun aldrei verða í móðu. Þú varst svo falleg, með svo fallegt bros og æðislegan hlátur. Og þegar þú söngst hljómaðir þú eins og engill. Ég fæ alltaf sting í hjartað þegar ég hugsa um þig & kökk í hálsinn. Það er enn þá of sársaukafullt að rifja upp minningarnar sem ég á með þér. En samt er það svo gott að hugsa um þig, það færir þig einhvernveginn nær mér. Allt sem við áttum mun ég geyma að eilífu. Ég mun varðveita allar minningarnar svo lengi sem ég lifi. Hafðu það gott á nýja staðnum þínum og eigðu góðan dag. Ég hugsa til þín í dag sem og alla aðra daga. Ég elska þig mest í heimi.
Kveðja þín vinkona.
12. mars 2008 klukkan 09:33
Eva Hildur Snjóudóttir
Engin athugasemd
24desember

Hæ elsku fallegi engillinn minn. Vildi bara óska þér gleðilegra jóla & vona að þú hafir það gott þar sem þú ert. Ég sakna þess svo að hitta þig, vildi að ég gæti hitt þig, bara einu sinni enn.
Elska þig mest í heimi & sakna þín :-*
24. desember 2007 klukkan 13:43
Eva Hildur Snjóudóttir
1 athugasemd
20desember

Sakna þín meira með hverjum degi sem líður.

Hæ elsku vinkona.
Ég hugsa til þín á hverju degi. Jólin eru að koma og ég vildi svo mikið geta séð þig, verið með þér. Enn þá skil ég ekki af hverju þú þurftir að fara. Ég hef reynt að finna svar og skilja hvers vegna þú varst tekin frá mér, en ég bara fæ ekkert svar og skil ekki neitt. Þetta er svo ósanngjarnt og erfitt, af hverju fékkstu ekki að lifa??
Gráta Það sem huggar mig er að vita það að þér líður vel þar sem þú ert. Ekki það að þér hafi liðið eitthvað illa hér í þessu lífi. Ég ímynda mér að þú sért á einhverjum fallegum stað, umfavin englum, blómum, sól og fuglasöng. Þú ert syngjandi og dansandi eins og þú varst yfirleitt alltaf.
Jæja, ég er bara farin að gráta hérna við tölvuna. Skrifa meira til þín seinna. Ég elska þig svo mikið og sakna þín svo sárt.
Koss og knús, elsku fallega vinkona mín. Hvíl í friði fallega Sigrún.
20. desember 2007 klukkan 10:57
Eva Hildur Snjóudóttir
Engin athugasemd
27september

Fleiri að skrifa,komenta..

Af hverju eru svona fáir sem skrifa hérna inn? Bara að velta því fyrir mér.

Annars langaði mig bara að segja að ég hugsa stöðugt um þig, elsku Sigrún mín. Alltaf er stingurinn í hjartanum jafn sársaukafullur, hann minnkar ekkert. Ég sakna þín svo mikið & vildi svo að ég gæti spólað til baka & séð þig, þó það væri ekki nema bara einu sinni. Heyrt rödd þína einu sinni enn, heyrt hlátur þinn & heyrt þig syngja. Séð brosið þitt, sem var svo fallegt & svo einlægt. Ef ég fengi bara einn dag í viðbót með þér, þá myndi ég segja þér svo margt. Ég hef svo margt að segja, svo mikið sem þurfti að gera..
Ég sakna þín svo mikið að ég hef engin orð til að lýsa því.
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Hafðu það gott, hvar sem þú ert. Elska þig alltaf,elsku fallega Sigrún mín.
27. september 2007 klukkan 15:12
Eva Hildur Snjóudóttir
2 athugasemdir
02júlí

Söknuður er ein s´versta tilfinning sem ég hef upplifað.

Jæja, þá er þessi dagur runninn upp, þó svo að ég hefði viljað komast hjá því. En það er víst ekki hægt. Mér finnst það skrítin tilhugun að það sé komið 1 ár síðan þú yfirgafst þennan heim. Það einhvernveginn er svo fjarstæðukennt. Þú varst svo lífsglöð & hamingjusöm, en svo lítil í þér & með mikla minnimáttarkennd. Ég skildi stundum ekki af hverju þú varst með svona mikla minnimáttarkennd; þú varst svo falleg & hafðir mikla hæfileika. Ég öfundaði þig oft & held að þess vegna hafi stundum verið ansi stirt á milli okkar. Þú hafðir allt sem mig langaði & mér fannst svo furðulegt hvernig ég gæti átt svona fallega vinkonu. Svo kom sá dagur að ég missti þig, en sem betur fer ekki í illu, en til er orðatiltæki sem hljómar svona: Engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.. & það átti svo sannarlega við. Ef ég aðeins fengi 1 dag til að segja þér allt sem ég lét ósagt, það myndi breyta öllu. En í staðinn er ég hér, með hnút í maganum yfir allri vitleysunni í okkur & get ekkert gert, nema bara reynt að tala við þig í von um að ú sért einhversstaðar þar sem þú heyrir í mér. Ég held samt að þú vitir það alveg að þrátt fyrir allt, þá elskaði ég þig. Ég meina, væntumþykjan hverfur ekkert bara eins & hendi væri veifað. Þú munt alltaf eiga þinn sess í hjarta mínu, han er frátekinn fyrir þig & þó þú sért horfin fær engin annar hann í staðinn, því þð er engin sem getur komið í staðinn fyrir þig..aldrei. Þú varst einstök manneskja, sem lýstir upp tilveruna hvert sem þú fórst. Ég mun aldrei að eilifu gleyma þér & ég mun varðveita allar okkar minningar um ókomin ár. Láttu þér líða sem allra best, elsku fallega Sigrún mín.
Guð gefi fjölskyldu hennar & vinum styrk á þessum degi.
Mining þín er ljós í lífi okkar.
Sigrún Kristinsdóttir fædd: 12.mars 1986 dáin: 2.júli 2006.
02. júlí 2007 klukkan 09:22
Eva Hildur Snjóudóttir
Engin athugasemd
12mars

12.03

Elsku fallega Sigrún..til hamingju með 21 árs afmælið þitt. Ég ætlaði að fara með gjöf til þín þegar ég var fyrir norðan en það var svo mikið að gera hjá mér & ekki beint skemmtileg ferð sem ég var í. En ég ætla að fara með næst þegar ég fer norður, þá set ég eitthvað fallegt á leiðið þitt. Ég vona að þú hafir átt góðan dag á himnum & að þér líði vel.
Finnst enn þá svo óraunverulegt að þú sért farin, en þannig er það bara..
Jæja, vildi bara óska þér til hamingju með afmælið =)
kveðja Inga
12. mars 2007 klukkan 23:17
Eva Hildur Snjóudóttir
1 athugasemd
05janúar

Draumur...

Sæl elskan..jæja,þá er nýtt ár gengið í garð..gleðilegt nýtt ár..ótrúlgt að það sé komið 2007..man þegar við vorum niðrí kirkju, að bíða eftir að það kæmi árið 2000..við stungum alla af,löbbuðum áshlíðina til að reykja okkar seinustu sígarettu..við ætluðum sko að byrja nýja öld reyklausar..vá það entist í 1 dag eða svo..hehe.. en já, ég fór með kerti til þín um jólin,reyndar svolítið seint,komst ekki á aðfangadag..en ég fór samt með það. Þetta var samt frekar klúðurslegt, því það var svo mikið rok að ég náði ekki að kveikja á kertunum..svo ætlaði ég að kveikja á friðarkertinu sem var á leiðinu þínu, en kveikti í mér í staðinn...og ef ég þekki þig rétt þá myndi ég giska á að þú hafir hlegið að þvíBrosandi  En vonandi hefur einhver getað kveikt á kertunum sem ég kom með, þetta voru reyndar bara sprittkerti,en mér fannst kertastjakarnir svo fallegir,með englum..bara svona til að vaka yfir þér & til að gefa þér smá birtu þegar það er orðið dimmt..

Jæja,ég er núna flutt til Reykjavíkur & það er bara fínt..ætla samt ekki að búa þar til frambúðar..Reykjavík er of stór fyrir mig..en ég ætla í skóla,læra kvikmynda-og leiklistarförðun...hlakka mjög mikið til..
það er svo skrítið..mig dreymdi þig í nótt..þú sast á engi & varst að syngja.. ég þekki ekki lagið sem þú varst að syngja, en þú varst skælbrosandi..það var smá gola, því hárið á þér flökti til..svona var draumur..þú sitjandi á engi að syngja... ég huga svo oft um þig..ég á svo endalaust margar minningar um þig.. það er gott að láta hugann reika til baka,en samt svo sárt..en á meðan ég hef minningarnar, þá lifirðu..
ég get ekki trúað því að það séu 6 mánuðir & tveir dagar síðan þú kvaddir okkur.. mér finnst það ekki vera svona langt..þessi dagur er svo minnisstæður..svo alltof skýr..vildi að ég gæti bara lokað hann burt úr huga mínum..en það kemur að því að við hittumst á ný..& þá ætla ég að segja þér svolítið..en þangað til,hafðu það gott & vonandi líður þér vel..
kossar&knús
Inga

05. janúar 2007 klukkan 01:20
Eva Hildur Snjóudóttir
Engin athugasemd
24desember

Jólin

Elsku Sigrún mín....núna eru jólin að koma og það er skrítið að hugsa til þess að þú sért ekki hér. Ég man að um þetta leyti í fyrra þá sættumst við...& við hlógum að vitleysunni í okkur að vera í fýlu út í hvor aðra, því við gátum hreinlega ekki munað af hverju við vorum í fýlu. Og ég man að þú tókst utan um mig & sagðir að héðan í fá ætluðum við aldrei að verða ósáttar aftur & vera góðar við hvor aðra.
Æi, við vorum svo miklir kjánar að eyða tímanum svona óskynsamlega..áður en við urðum ósáttar,varstu besta vinkona mín..ég man sumarið 2003, þegar ég átti í baráttu við sjálfa mig, þá komstu til mín, seint um kvöldið & sat hjá mér & sagðir mér að ég gæti alveg sigrast á þessu & þú sagðir að þú ætlaðir að hjálpa mér eins mikið & þú gætir..sem þú gerðir líka..þú varst ein af fáu vinkonum mínum sem stóðst með mér & sleist aldrei sambandið á milli okkar..þú trúir því ekki hvað það hjálpaði mér mikið. Þegar ég svo hringdi í þig & sagði þér að allt væri búið, ég hefði sigrast á þessu, þá safðiru: Inga, ég vissi að þú gætir þetta...síðan bauðstu mér upp á Brynjuís til að halda upp á þetta =)
Svona varstu, alltaf svo góð & yndisleg.. ég man líka þegar ég sagði þér að ég væri ólétt..þú trúðir mér ekki & lést mig taka þungunarpróf fyrir framan þig hehe..
Ég á svo ótrúlega margar minningar um þig sem ég mun varðveita alla mína ævi...ég mun aldrei gleyma hlátrinum þínum,brosi þínu,augunum þínum & þessari kjánalegu feimni þinni...
Ég sá mömmu þínaí Nettó um daginn & hún leit bara rosalega mjög vel út.. ég bið Guð að gefa fjölskyldu þinni & öllum þeim sem þekktu þig styrk á þessum tíma...ég vona að þér líði vel þar sem þú ert.
Elska þig alltaf, þú veist það, þó svo að ég sagði það ekki nægilega oft við þig...en þú veist það samt, er það ekki? =)
Kossar & knús Inga Huld

24. desember 2006 klukkan 02:54
Eva Hildur Snjóudóttir
Engin athugasemd
12desember

sæl elskan mín....

núna eru jólin bara að koma...þetta verða furðuleg jól....man ekki betur enn bara seinustu jól að þá vorum við bjánarnir á bíl sem pabbi þinn lánaði okkur...eða hvort það var bara bílinn ykkar...fórum á bílaplanið hjá rúntubílastöðinni og vorum að LEIKA okkur að festa bílinn...og fyrir hreina heppni þá ákveða Hallfríður og Ragna Dís að keyra þarna framhjá og sjá okkur og fara að leika sér með okkur líka....endaði líka með því að við þurftum að hringja á lögguna og biðja hana um að koma og hjálpa okkur því að Halla og Ragna sátu svo PIKK fastar....HAHAHAHHA....shit það var SNILLD.....
svo ætla ég ekki einu sinni að tala um jólagjöfina góða mín...sem þú gafst mér í fyrra....sem meðal annars sagðiru mér EKKI að ég ætti EKKI að opna hana fyrir framan pabba og mömmu....hmmSkömmustulegur....hehe það var bara snilld...og sýnir líka nákvæmlega hvernig persóna þú ert....ekkert nema snillingur...hehe

sá mömmu þína og pabba á sunnudaginn....þau lýta bæði svakalega vel út....talaði ekkert við þau....við vorum bæði í bíl og ég sá þau svo seint að ég náði ekki einu sinni að vinka....
svo hitti ég Ástu á Palla fyrir ekki svo löngu...hún alltaf jafn sæt og hress....
mér skyldist það á mömmu að foreldrar þínir séu að fara út um jólin...sem er bara gott mál...gott að breyta aðeins tilBrosandi
jæja elskan mín...ætlaði bara aðeins að koma svolitlu niður á blað....jaaa...eða í tölvu....hehe....fór líka á miðilsfund um daginn....en ég þarf víst ekkert að segja þér neitt frá því....hehe.....það sem að stóð uppúr var klárlega þetta með bláa ljósið í kringum mig....ég vissi þettaKoss
jæja ástin mín....þangað til næst......
Hildur þínKoss
12. desember 2006 klukkan 22:40
Eva Hildur Snjóudóttir
2 athugasemdir

Könnun

Hvað manstu helst eftir Sigrúnu?

Auglýsing

Undirsíðukubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Klukkan